Höfnuðu ráðgjöf um að göng undir Klettsháls yrðu í forgangi - Vísir
Vestfirskir sveitarstjórnarmenn höfnuðu í september í fyrra tillögu ráðgjafarfyrirtækis sem setti jarðgöng undir Klettsháls efst á forgangslista yfir næstu göng í fjórðungnum. Þess í stað ákvað Fjórðungsþing Vestfirðinga að setja ekki fram neina forgangsröðun með þeim rökum að slík forgangsröðun myndi ekki hljóta samstöðu sveitarstjórna á Vestfjörðum.