Þrjátíu árum fagnað með fullu húsi og mikilli matarveislu - Vísir
Það var heldur betur líf og fjör í Hótel- og matvælaskóla Menntaskólans í Kópavogi á dögunum þegar 30 ára afmæli skólans var fagnað. Húsið fylltist af gestum og segir Haraldur Jóhann Sæmundsson, framkvæmdastjóri skólans, að aðsóknin hafi farið fram úr björtustu vonum.