Guðmundur Fertram og risasala á Kerecis hlutu viðskiptaverðlaun Þjóðmála - Innherji
Guðmundur Fertram Sigurjónsson, stofnandi og forstjóri Kerecis, var útnefndur viðskiptamaður ársins 2023 á Hátíðarkvöldi Þjóðmála síðastliðinn fimmtudag auk þess sem risasala á fyrirtækinu til alþjóðlega heilbrigðisrisans Coloplast fyrir jafnvirði um 180 milljarða króna var valin viðskipti ársins. Þá hlaut Jón Sigurðsson, fyrrverandi forstjóri Össurar, sérstök heiðursverðlaun Þjóðmála fyrir ævilangt framlag sitt til uppbyggingar íslensks atvinnulífs.